Neitunarvaldið!!!??
9.6.2011 | 14:07
Er ekki löngu tímabært að afnema það að einstaka þjóðir hafi einhvað neitunarvald sem byggist á einhverju fornsögulegu valdaplotti sem er tímavilla nú í dag.
|
Rússar andvígir ályktun um Sýrland |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bara gleðst yfir þessu!
14.2.2011 | 10:10
Ólíkt helv... bankamafíunni, útrásarvíkingunum og fleiri svokölluðum fjárfestum þá hafa forráðamenn Össurar staðið sig vel í gegnum tíðina og verið með óflekkað mannorð.
Hafa aldrei lagts svo lágt að taka þátt í ósiðlegum viðskiptum eða fjármálagerningum.
Ég er bara ánægður með fyrir þeirra hönd að þeir séu vel launaðir en öfundast ekkert né hneykslast.
Þeir eru einfaldlega vel að þessu komnir.
Spurning um að fá þessa ágætu menn sem að stjórna fyrirtækinu Össuri til að reka fyrirtækið Ísland?
Held að þeir væru réttu mennirnir í jobbið!
|
Með 158 milljóna árslaun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fjórhjól en ekki Jeppi??? !
31.7.2010 | 22:34
Ég er kannski svona vitlaus en hvernig má það vera að menn þurfi að bíða björgunar þar sem þeir sitja fastir á fjórhjóli sínu sem nær þeim rétt í mittishæð að öllu jöfnu ef svo langt upp þ.e.a.s.
Afhverju asnaðist maðurinn ekki einfaldlega til að standa upp og vaða í land fyrst að áin eða sprænan var ekki dýpri en svo að hægt var að keyra yfir á fjórhjóli.
Held að málið sé ekki flóknara en svo að björgunarsveitirnar voru kallaðar til að bjarga fjórhjólinu en ekki manninum sem líklega var aldrei í nokkurri hættu en sat sem fastast á fjórhjólinu svo það týnist ekki í sprænunni.
Ef þetta er ekki gróf misnotkun á starfsemi björgunarsveitanna þá veit ég ekki hvað!!
|
Manni bjargað úr jökulá |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ábyrgð skipaðra fulltrúa gagnvart þingi og þjóð?
29.7.2010 | 10:40
Mér er spurn hvort að skipuðum fulltrúum sé í sjálfsvald sett hvernig þeir fari með atkvæði Íslands á alþjóðavettvangi hvort sem um er að ræða SÞ eða aðrar alþjóðastofnanir?
Eða fara þeir eftir fyrirmælum eða tilskipunum ríkisstjórnar eða tiltekinna ráðuneyta þegar þeir nýta atkvæðisrétt Íslands á alþjóðavettvangi?
Þessi tiltekna atkvæðagreiðsla er allavegana Íslandi og íslenskri þjóð til skammar og því full ástæða til að fulltrúi Íslands verði krafin um svör við því afhverju hann sat hjá við þessa atkvæðagreiðslu.
Ég geri allavegana kröfu um að íslenskir fjölmiðlar rannsaki hvað hafi átt sér stað þarna og afhverju fulltrúi íslands fór svona með atkvæðisréttinn.
|
Ísland sat hjá á þingi SÞ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1,25 miljónir - Brandari eða komma sem á ekki að vera???
16.7.2010 | 10:08
Mér er spurn.
Er núverandi forstjóri FME að stimpla sig inn sem sami trúðurinn og forveri hans í embætti.
Hann virðist ekki taka á neinu af þeim brotum sem upplýsast af neinni alvöru.
Fjármálafyrirtæki starfa án tilskilinna leyfa.
Og það eina sem maðurinn afrekar er það að láta ríkisstjórnina hafa sig að fífli með því að lítilsvirðia dóm hæstaréttar og réttarfarsríkið.
Held það sé komin tími á nýjan og betri mann í embættið.
|
Exista og Bakkavör brutu lög um verðbréfaviðskipti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvenær verða þessir menn settir í gæsluvarðhald???!!!
19.6.2010 | 20:13
Aðkoma þeirra að ýmsum félögum og eignarhaldsfélögum hvar allt fé hefur horfið nánast á einni nóttu hlýtur að réttlæta það að þessir menn séu settir í gæsluvarðhald og yfirheyrðir um þessa gerninga.
Því fjandakornið þá getur svona framferði engan vegin verið löglegt.
Og ef að svo er þá getur þetta svokallaða réttarfarsríki farið í rass og rófu(:
|
Eignalaust Arena Holding |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miljarðir miljarða í banka - krónur í sveltandi fólk.
25.5.2010 | 16:37
Er alþjóðasamfélagið gjörsamlega að skíta á sig enn þann dag í dag.
Hvað með Sameinuðu þjóðirnar og allar þeirra stofnanir. Hvað með Evrópusambandið og Bandaríkin.
Endalaust hægt að dæla þúsundum miljarða í siðlaust og handónýtt fjármálakerfi heimsins en þegar kemur að því að bjarga sveltandi fólki frá hungurdauða þá þarf að kría út hvern dollara nánast með töngum frá þessu liði því þeir halda svo fast um aurin.
maður verður svo gjörsamlega kjaftstopp þegar maður les frétt sem þessa!!!!
|
Hungursneyð blasir við tveimur milljónum íbúa Tsjad |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hið besta mál í alla staði!!!!!!!!!!
3.4.2010 | 22:30
Það að þeir höfði mál gerir kröfu um það að allar færlsur og viðskiptahættir bankans almennt verði rannsakaðir og krufðir til mergjar.
Sem er gott!!!
Að sjálfsögðu veit hver skyniborin maður hér á íslandi að viðskiptahættir bankana vour almennt bæði siðlausir og þessutan hrein og klár lögbrot.
Hinsvegar þykir mér miklar líkur á að þetta skítkast þeirra bræðra endi í andlitinu á þeim sjálfum miðað við umfjöllun fjölmiðla um þá fram að þessu. Kannksi að Bakkabræður lendi í skítnum með þeim.
Það væri ljúft!!!
|
Tchenguiz-bræður undirbúa mál gegn Kaupþingi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvaða sjómenn hafa lagst gegn því.
24.3.2010 | 09:49
Nú er vitað mál að LÍÚ og útvegsmenn hafa Sævar Gunnarsson algjörlega í vasanum.
Hann pípir og vælir rétt eins og Vilhjálmur þegar hann fær upphringingu þess efnis.
Þessi maður er skaðræðisskepna fyrir sjómannastéttina og ætti að koma honum frá sem fyrst.
Hvað er hann annars búinn að afreka í sambandi við það að loka á:
1. Frjálsa framsalið.
2. Kvótaleiguna.
3. Veðsetninguna á kvóta.
?????
|
Sjómenn taka þátt í störfum sáttanefndar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þegar hreyfa á við "heilögum" kvótanum byrjar dramað.
22.3.2010 | 23:52
Ríkisstjórnin er búin að gera eitt og annað ekki. Svona ástæður sem að SA gætu hafa notað til að hamra á stöðugleikasáttmálanum.
Nei!!! Þá var það á endanum "háheilagur" kvótinn sem að setti þjóðarskútuna á aðra hliðina og sökkti henni fyrir rest.
Þvílíkur dramakarl þessi Vilhjálmur!
ps: annars hef ég heyrt að hann skæli þegar honum er sagt að skæla.
|
Stöðugleikasáttmálinn rofinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)









